Sólareignir.is er rekið af fasteignasölunni ALLT FASTEIGNIR og þjónustum við Íslendinga við kaup á eignum á Spáni og Florida USA. Einnig erum við með eignir annarstaðar í Evrópu.
•
Hjá fyrirtækinu eru tólf starfsmenn og þar af átta íslenskir löggiltir fasteignasalar. Fyrir utan að vera með skrifstofu á Spáni og samstarfsaðila í Orlando og Kanaríeyjum þá erum við með starfstöðvar á íslandi á fjórum stöðum undir ALLT FASTEIGNIR. Starfstöðvarnar eru í Reykjavík, Grindavík, Vestmannaeyjum og Reykjanesbæ.
•
Á Spáni og Orlando eru lögfræðingar og fasteignasalar. Með þessu eru þið í tryggum höndum alla leið.
•
Við bjóðum uppá nýjar og notaðar eignir og bæði til kaups eða leigu. Einnig bjóðum við í vissum tilvikum uppá það að eignin er leigð út þegar eigendur eru ekki að nota hana en það er þá gert í gegnum samstarfsaðila okkar.
•
SÓLAREIGNIR.is kappkosta að bjóða þér góða og ánægjulega þjónustu, þannig að upplifun þín verður sem best og þú finnir sólareignina þína.